21.11.2023

Tveir nýir starfsmenn hjá SIV eignastýringu

SIV eignastýring hlaut starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða í júní síðastliðnum en félagið var stofnað á síðasta ári og er með um 60 milljarða króna í stýringu. Félagið hefur nú ráðið til sín tvo öfluga starfsmenn, þau Guðrúnu Unu Valsdóttur og Jón Rúnar Ingimarsson, en starfsmenn félagsins eru nú orðnir sjö talsins.

mynd

Guðrún Una Valsdóttir

Una hefur verið ráðin sem sjóðstjóri í skuldabréfateymi félagsins en hún hefur yfir tuttugu ára reynslu í eignastýringu. Hún starfaði nú síðast sem sjóðstjóri hjá Glym hf., dótturfélagi Fossa fjárfestingarbanka, en áður starfaði hún hjá Landsbréfum/Landsbankanum. Þar stýrði hún skuldabréfateymi rekstrarfélags bankans, starfaði sem verðbréfamiðlari og var fjárfestingarstjóri í eignastýringarteymi bankans sem meðal annars stýrir Íslenska lífeyrissjóðnum.

Una nam viðskiptafræði við Háskóla Íslands, lauk þaðan meistaragráðu í fjármálum (M.Sc.) árið 2002 og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Þá er Una einnig með B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið framhaldsnámi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands.

Jón Rúnar Ingimarsson

Jón Rúnar hefur verið ráðinn sem sjóðstjóri hlutabréfa en hann starfaði áður sem sjóðstjóri erlendra hlutabréfa hjá Stefni hf. og í markaðsviðskiptum hjá Kviku og Landsbankanum. Jón Rúnar lauk meistaragráðu í fjármálum (M.Sc.) frá Esade viðskiptaháskólanum í Barcelona á Spáni árið 2021. Hann lauk jafnframt B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2016. Jón Rúnar hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Þau hefja bæði störf hjá félaginu í desember. Una hefur störf hjá SIV eignastýringu samhliða færslu rekstrar Glyms til SIV eignastýringar, en sameining VÍS og Fossum fjárfestingarbanka er frágengin.

Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIV eignastýringar

„Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval sjóða fyrir almenna fjárfesta og fagfjárfesta auk eignastýringar hjá SIV eignastýringu. Ég fagna komu Unu og Jóns Rúnars til okkar, en ég tel að reynsla þeirra og menntun eigi eftir að styrkja félagið enn frekar til framtíðar. Ég býð þau hjartanlega velkomin til okkar.“