18.04.2023

Þorkell Magnússon til SIV eignastýringar

Þorkell Magnússon hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sjóðastýringar hjá SIV eignastýringu.

mynd

Þorkell hefur umtalsverða reynslu úr fjármálageiranum því hann hefur starfað í geiranum undanfarin 25 ár.

Þorkell var áður forstöðumaður sjóðastýringar hjá Kviku eignastýringu hf. og var þar á undan forstöðumaður skuldabréfa hjá Öldu sjóðum. Hann var jafnframt forstöðumaður skuldabréfasviðs hjá Stefni hf. auk þess að vera staðgengill framkvæmdastjóra félagsins. Þorkell gegndi þar áður stöðu sjóðstjóra innlendra og erlendra skuldabréfasjóða hjá Rekstrarfélagi Kaupþings ásamt því að taka þátt í þróun á sérhæfðum fjárfestingum hjá félaginu. Hann er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota. Þorkell hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. Þorkell hefur nú þegar hafið störf.

Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIV eignastýringar:

„Það er afar ánægjulegt að fá jafn öflugan starfsmann til starfa fyrir félagið. Ég tel að víðtæk reynsla hans og menntun muni styrkja félagið enn frekar. Við hlökkum til að bjóða upp á fjölbreytt framboð sjóða, auk eignastýringar, um leið og félagið fær starfsleyfi.“