14.06.2023

SIV eignastýring fær starfsleyfi frá Seðlabanka Íslands

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt SIV eignastýringu hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar auk móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga.

mynd

SIV, sem er dótturfélag VÍS, var stofnað árið 2022. Boðið verður upp á sérhæfða fjármálaþjónustu fyrir almenning og fagfjárfesta. Arnór Gunnarsson, fyrrum forstöðumaður fjárfestinga hjá VÍS, er framkvæmdastjóri félagsins.

Við þessi tímamót verða starfsmenn fjárfestinga VÍS, þeir Arnór Gunnarsson og Guðmundur Oddur Eiríksson, nú starfsmenn hjá SIV eignastýringu. Samhliða þessu færist stýring fjárfestingareigna VÍS til SIV eignastýringar en safnið var 44 milljarðar króna við lok fyrsta ársfjórðungs.

Auk Arnórs starfa þrír starfsmenn hjá SIV eignastýringu. Þorkell Magnússon, er forstöðumaður sjóðastýringar, Guðmundur Oddur Eiríksson er sjóðstjóri í eignastýringu og Sævar Haraldsson er sjóðstjóri í sjóðastýringu. Þar að auki mun Sigurður Ottó Þorvarðarson hefja störf hjá félaginu í ágúst næstkomandi.

SIV eignastýring mun á næstu vikum stofna fyrstu sjóðaafurðir félagsins, þar sem bæði verður boðið upp á sérhæfða sjóði fyrir almenning og sérhæfða sjóði fyrir fagfjárfesta. Viðskiptavinum félagsins mun einnig standa til boða sérhæfð stýring á eignasafni þeirra en sú þjónusta er sniðin að fagfjárfestum, t.a.m. lífeyrissjóðum, fyrirtækjum og öðrum stofnanafjárfestum. Rík áhersla verður lögð á virka stýringu á fjármunum með áherslu á traust og langtímaárangur.

Arnór Gunnarsson, framkvæmdastjóri SIV eignastýringar:

„Við fögnum þessum góðu tímamótum að starfsleyfi sé komið fyrir SIV eignastýringu, félag sem stofnað var frá grunni í september á síðasta ári. Á næstu vikum mun öflugt teymi félagsins kynna fjölbreytt úrval fjárfestingarkosta í sjóða- og eignastýringu. Við hlökkum til að leggja okkar af mörkum til þess að hjálpa viðskiptavinum okkar að ná góðum árangri í fjárfestingum sínum.“